Legsteinar og fylgihlutir Myndalisti 1 Myndalisti 2
Panta myndalista Gæludýrasteinar
Sólbekkir Arinsmíði Steinsögun Flísasögun
Tenglar Garður.is Arinsmíði - Jón Eldon
|
Steinsmiðjan Mosaik hefur starfað frá árinu 1952. Fyrstu árin voru það aðallega
steinsteypt handrið, terrazzo gólf, gifslistar og rósettur sem voru framleidd hjá
okkur. Um 1970 hófum við framleiðslu á legsteinum sem eru nú aðal söluvara okkar.
Legsteinarnir eru bæði úr innfluttu efni sem og íslensku grjóti. Bæði marmari og
granít eru innfluttar steintegundir og eru til í ótal litbrigðum. Hjá okkur er granítið
fáanlegt í nokkrum litum en marmarinn í hvítu með gráum æðum.
Hér á landi eru nokkrar steintegundir notaðar í legsteina og höfum við verið með
þrjár tegundir; blágrýti, gabbró og líparít.
Blágrýtisstuðlarnir koma frá Hrepphólum í Árnessýslu, gabbrósteinarnir austan frá
Hornafirði og líparítið er úr Rauðuskriðum í Hamarsfirði.

|